Öryggisblað fyrir sement 2020
08.12.2020
Öryggisblað fyrir sement frá Norcem AS hefur verið uppfært á íslensku. Ný uppfærsla öryggisblaðsins er í samræmi við síðustu endurskoðun blaðsins sem framkvæmd var 21.06.2018.
Öryggisblaðið er í samræmi við reglugerð 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH) og reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.
Öryggisblaðið á íslensku verður ásamt ensku útgáfunni frá Norcem vistað inni í gagnagrunninum ECOonline.
Einnig má nálgast öryggisblöðin inni á heimasíðu Sementsverksmiðjunnar, sement.is undir flipanum „Sement“.
Akranesi 07.12.2020